Sunnudagur, 3. janúar 2010
Björn Valur virðist ekki kunna að skammast sín fyrir ógnandi tal gagnvart valdi forsetans
Hann segir nú við erlenda fréttastofu, að "ef ekkert heyrist frá forseta Íslands í dag um hvenær hann taki afstöðu til Icesave-laganna, hljóti Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra að hafa samband við hann í kvöld og hvetja hann til að taka ákvörðun á hvorn veginn sem er." Þetta er að setja spennu á forsetann, og er Björn líklega notaður til þessa óþrifaverks fyrir sína flokksforystu, en þetta er alvarlegt mál gagnvart stjórnarskrárvörðum rétti forsetans til sinnar ákvörðunar án þrýstings frá framkvæmda- eða þingræðisvaldinu, en Björn Valur er varaformaður fjárlaganefndar. Hvernig hann komst í þann stól er undirrituðum hulin ráðgáta, en ekki var hann þekktur að sérþekkingu í fjármálum, áður en hann tók við þeirri stöðu, glænýr á Alþingi, og hann hefur raunar hlaupizt undan verkum verulegan tíma á árinu, þegar mest mæddi á nefndinni í Icesave-málinu, til að sinna sjómennsku.
- „Það þarf að fá niðurstöðu í þetta mál áður en fjármálamarkaðir verða opnaðir á ný í fyrramálið," hefur Bloomberg eftir Birni Val.
Þetta væri nú alveg bráðhlægilegt, ef ekki væri fyrir þá sök, að hér vill Björn Valur setja hættulega tímapressu á forsetann. En hver tekur mark á svona hræðsluáróðri manns sem naumast nokkurt vit hefur á fjármálum?
- Árni Sigurjónsson, skrifstofustjóri skrifstofu forsetans, segir við Bloomberg, að engin ákvörðun hefði verið tekin um hvenær forsetinn tilkynni um niðurstöðu sína. „Hann mun skoða málið í dag. Það er ekkert um þetta að segja eins og er, það er verið að skoða spjöldin."
Já, vitaskuld þarf forsetinn að skoða málið, það hefur svo margt verið að koma fram nýtt um það á síðustu vikum, t.d. bara um hina hneykslanlegu vaxta-hlið samninganna, svo að nokkuð sé nefnt.
- Björn Valur segir jafnframt við Bloomberg, að staðfesti forsetinn ekki Icesave-lögin þýði það endalok ríkisstjórnar Samfylkingarinnar og Vinstrihreyfingarinnar-græns framboðs.
Það er sem sé gamla hótunarlagið á því: reynt að stjórna í krafti sífelldra ógnana, hvort heldur það er gagnvart eigin þingmönnum eða jafnvel forsetanum sjálfum!
Mál er að linni.
PS. Þeir flokksmenn eru gjarnan kallaðir jarðýtur, sem beita sér gróflega fyrir flokkseigendur sína; þykir sums staðar líklegt til frama að gera sem mest af þessu tagi til að þókknast foringjunum. Nú í kvöldfréttum Rúv bættist Sigríður Inga Ingadóttir Samfylkingarkona í lið með Birni Vali í þeirri freku viðleitni að þrýsta á forsetann, en þetta framferði sitt byggja þau vitaskuld ekki á málfrelsi sínu sem einstaklingar, heldur á stöðu sinni í þinginu og flokkunum. En hræðsluáróður Björns Vals um, að það leiki lánshæfisvísitölu okkar grátt, að ákvörðun um Icesave-lögin dragist fáeina daga,* missti loftið úr blöðrunni, þegar Ólafur Ísleifsson hagfræðingur benti á það í sömu kvöldfréttum, að breyting á lánshæfisvísitölu hefði engin áhrif nú um stundir, því að við erum hvorki að taka ný lán né endurnýja önnur!
* Taka ber fram, að frá samþykkt fjölmiðlalaganna 2004 liðu átta dagar, þar til forsetinn kvað upp úr um synjun sína á lögunum, en nú í kvöld eru fjórir dagar frá samþykkt Icesave-ólaganna.
Jón Valur Jensson.
|
Nauðsynlegt að fá niðurstöðu fljótt |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Meginflokkur: Icesave-málið | Aukaflokkar: Stjórnmál og samfélag, Fjármál, Dægurmál | Breytt s.d. kl. 19:37 | Facebook
Um bloggið
Kristinn þjóðarflokk !
Nýjustu færslur
- Engin norsk ríkiskirkja lengur!
- Hrörnunarstefna veraldarhyggjunnar "ber ávöxt"
- 130.000 flettingar á Krist.blog.is
- Hér vantar bæði vinstri flokk og kristinn flokk
- Norska ríkissjúkrahúsið í Ósló brýtur lög; áfrýjunarnefnd sam...
- Dauðsfall vegna umskurnar barns í Noregi
- Er niðurstaða forsetakosninganna vestanhafs þegar ráðin?
- Gjöf ásatrúarmanna var til fyrirmyndar - ennþá fleiri slíkar ...
- Mál samkynhneigðra gætu ráðið úrslitum í forsetakosningum í B...
- Á að beina unglingum í kynskiptiaðgerðir?
- Hryllileg grimmd og siðleysi
- Afar gróf mannréttindabrot viðgangast enn í Kína. Virðum mann...
- Undarleg frumvörp islamista í Egyptalandi
- Þurfa landeigendur að sækja um undanþágu til umhverfisráðherr...
- Krugman varar við "efnahagslegu sjálfsmorði Evrópu" (European...
Færsluflokkar
- Alræðisstefnur
- Andleg mál; Biblíutextar
- Áfengis- og fíkniefnamál
- Álver, stóriðja
- Biblíutextar
- Bloggar
- Borgarmálefni
- Bækur
- Dýravernd
- Dægurmál
- ESB
- Evrópumál
- Ferðalög
- Fiskveiðar, útvegsmál
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Fólksfækkunarvandi
- Fullveldi og sjálfstæði þjóðar
- Heilbrigðismál
- Heimspeki
- Icesave-málið
- Innflytjendamál
- Ísrael, Gyðingar, Mið-Austurlönd, islam
- Íþróttir
- Kjaramál
- Kvikmyndir
- Kynhneigðamál
- Landbúnaður, jarðamál
- Lífstíll
- Ljóð
- Löggæsla
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Nazismi, fasismi, Þriðja ríkið
- Ófæddir, lífsvernd
- Pepsi-deildin
- Samtökin, skipulag, félagslífið
- Sjónvarp
- Skoðanakannanir
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Sveitarstjórnarkosningar
- Sveitarstjórnarmál
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Uppeldis- og fjölskyldumál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Varnarmál og hernaður
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
- Vændi
- Þróunaraðstoð, 3. heimurinn
Tenglar
Yfirlit fyrri greina:
- 15.10.200920.11.2009 Þriðja yfirlitið um greinar á Krist.blog.is
- 19.5. 200914.10. 2009 2. greinayfirlitið á Krist.blog.is
- 9.3. 200715.4. 2009 Yfirlit pistla á Krist.blog.is frá upphafi 2007 til vors 2009
Bloggvinir
-
Guðmundur Pálsson
-
Guðsteinn Haukur Barkarson
-
Hafsteinn V Eðvarðsson
-
Helga Kristjánsdóttir
-
Jón Valur Jensson
-
Ólafur Þórisson
-
Rósa Aðalsteinsdóttir
-
Tómas Ibsen Halldórsson
-
Þórarinn Þ Gíslason
-
Aida.
-
Andri
-
Axel Jóhann Axelsson
-
Axel Þór Kolbeinsson
-
Aðalbjörn Leifsson
-
Baldur Gautur Baldursson
-
Baldur Hermannsson
-
Benedikta E
-
Bergur Thorberg
-
Bjarni Kjartansson
-
Björn Heiðdal
-
Brosveitan - Pétur Reynisson
-
Böðvar Ingi Guðbjartsson
-
Davíð Örn Sveinbjörnsson
-
Dóra litla
-
Elvar Atli Konráðsson
-
Emil Örn Kristjánsson
-
Eygló Hjaltalín
-
Eyþór Arnalds
-
Flower
-
Gunnar Rögnvaldsson
-
Guðbjörg Fortune Sigurðardóttir
-
Guðlaug Helga Ingadóttir
-
Guðmundur Jónas Kristjánsson
-
Guðmundur Júlíusson
-
Guðmundur St Ragnarsson
-
Haraldur Hansson
-
Guðni Karl Harðarson
-
Guðni Már Henningsson
-
Halldóra Hjaltadóttir
-
Halldóra Lára Ásgeirsdóttir
-
Haraldur Baldursson
-
Helena Leifsdóttir
-
Helga Þórðardóttir
-
Helgi Jónsson
-
Högni Jóhann Sigurjónsson
-
Hörður Finnbogason
-
Ingibjörg
-
Ingvar Leví Gunnarsson
-
Jakobína Ingunn Ólafsdóttir
-
Janus Hafsteinn Engilbertsson
-
Jens Sigurjónsson
-
Jeremía
-
Jóhann Kristján Valdórsson
-
Jón Aðalsteinn Jónsson
-
Jón Baldur L'Orange
-
Jón Snæbjörnsson
-
Jóna Sigurbjörg Guðmundsdóttir
-
Karl V. Matthíasson
-
Kristinn Ágúst Friðfinnsson
-
Kristján Björnsson
-
Loftur Altice Þorsteinsson
-
Mofi
-
Ragnar Kristján Gestsson
-
Predikarinn - Cacoethes scribendi
-
Páll Vilhjálmsson
-
Ragnar Geir Brynjólfsson
-
Ragnar Gunnarsson
-
Ragnhildur Kolka
-
Praise
-
Rödd í óbyggð, kristilegt félag
-
Samtök Fullveldissinna
-
Sigríður Laufey Einarsdóttir
-
Sigurlaug B. Gröndal
-
Sigurður G. Tómasson
-
Sigurður Sigurðsson
-
Sigvarður Hans Hilmarsson
-
Snorri Óskarsson
-
Stefán Friðrik Stefánsson
-
Stefán Ingi Guðjónsson
-
Sverrir Halldórsson
-
Theódór Norðkvist
-
Tryggvi Hjaltason
-
Unifer
-
Árni þór
-
Ívar Pálsson
-
Ólafur Jóhannsson
-
Ómar Geirsson
-
Ómar Ragnarsson
-
Úlfar Þór Birgisson Aspar
-
Þormar Helgi Ingimarsson
-
Þorsteinn Siglaugsson
-
Þórdís Ragnheiður Malmquist
-
Þórólfur Ingvarsson
-
Jóhann Hauksson
-
Þórður Guðmundsson
-
Óskar Sigurðsson
-
Tómas
-
Gunnlaugur Halldór Halldórsson
-
Guðrún Sæmundsdóttir
-
Óttar Felix Hauksson
-
Júlíus Björnsson
-
Kristinn Ásgrímsson
-
Gestur Halldórsson
-
Kristinn Ingi Jónsson
-
Heimssýn
-
S. Einar Sigurðsson
-
Gunnar Skúli Ármannsson
-
Birna M
-
Snorri Magnússon
-
Jakob Þór Haraldsson
-
Gunnar Helgi Eysteinsson
-
Gústaf Níelsson
-
Valdimar H Jóhannesson
-
Ólafur Ragnarsson
-
Jón Ríkharðsson
-
Magnús Þór Hafsteinsson
-
Kristinn Karl Brynjarsson
-
Högni Hilmisson
-
Salvör Kristjana Gissurardóttir
-
Þorsteinn Valur Baldvinsson Hjelm
-
Ingibjörg Guðrún Magnúsdóttir
-
Sigrún Jóna
-
Nonni
-
Tímanna Tákn
-
Þjóðarheiður
-
Barði Bárðarson
-
Birgir Viðar Halldórsson
-
Birgir Þór Júlíusson
-
Bjarni Harðarson
-
Bleika Eldingin
-
Friðrik Agnar Ólafsson Schram
-
Gísli Foster Hjartarson
-
Hörður Sigurðsson Diego
-
Jónas Pétur Hreinsson
-
Jón Lárusson
-
Jón Pétur Líndal
-
Kristinn D Gissurarson
-
Kristján Hilmarsson
-
Magnús Ragnar (Maggi Raggi)
-
Páll Þorvaldsson
-
Samstaða þjóðar
-
Samtök um rannsóknir á ESB ...
-
S i g u r ð u r Sigurðarson
-
Vera
-
Þorsteinn H. Gunnarsson
Eldri færslur
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Febrúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (27.5.): 0
- Sl. sólarhring: 8
- Sl. viku: 187
- Frá upphafi: 130288
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 131
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar







Athugasemdir
Mikið hjartanlega er ég sammála þér Jón Valur.
Ingibjörg Guðrún Magnúsdóttir, 3.1.2010 kl. 17:58
Björn Valur er gott einkenni Júdasar.Hann komst á þing,að tilstilli sjómanna,en var þó fyrstur til mæla með afmáð sjómannaafsláttinn.
Hann veit það líka,að sjómenn eru ekki tilbúnir að ganga í ESB,en verður sá fyrsti,að róa að þeim miðum.Sjálfsagt búinn að stilla sjálfstýringuna,eftir reiknaðri stefnu.Ég vona að,sterkir straumar beri hann af leið.
Ingvi Rúnar Einarsson, 3.1.2010 kl. 21:07
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.