Færsluflokkur: Ísrael, Gyðingar, Mið-Austurlönd, islam
Þriðjudagur, 22. maí 2018
Dagur B. og félagar vilja ekki læra -- taka islam fram yfir kristni og virða ekki kjósendur sem hafna mosku í Gallupkönnun
Meirihluti í borgarstjórn vísaði frá 15/5 að afturkalla úthlutun moskulóðar þótt skilyrði byggingarleyfis hafi verið svikin. Vinstri menn beita sér gegn því að skólabörnum sé gefið Nýja testamentið, virðast óttast kærleiksboðskap Jesú Krists og postula hans og það sem hann gaf okkur, hræðast hann meira en boðskap Kóransins og þann Múhameð sem ofsótti Gyðinga og framdi fjöldamorð á fólki í Medína og víðar til að auðgast og breiða út islam.
En mosku-andstaða kjósenda kemur fram í þeirri skoðanakönnun sem birt var 4. þ.m., sjá þessa grein:
2/3 þeirra, sem afstöðu taka í Gallupkönnun, eru andvígir byggingu mosku í Sogamýri.
Ráðherra innflytjendamála í Danmörku var í yfirlýsingu í dag ófeimin(n) við "að leggja til að múslimar taki sér frí frá vinnu í föstumánuðinum ramadan þar sem þeir sköpuðu mögulega hættu fyrir aðra í samfélaginu."
Ráðherrann eða öllu heldur ráðfrúin, Inger Stojberg,
lét ummæli sín falla í aðsendri grein í Berlinske Tidende. Í greininni sagði hún að trúfrelsi ríkti í Danmörku og að trú væri einkamál hvers og eins. Hún benti hins vegar á að múslimar í Danmörku ætu hvorki né drykkju í meira en átján tíma á sólarhring í föstumánuðinum. Sagði hún að í dönsku samfélagi væri krafa um langan vinnudag og stundum starfaði fólk við hættulegar vélar. Tók hún sem dæmi strætisvagnabílstjóra og sagði að fastan gæti haft áhrif á öryggi og framleiðni. Ég vil hvetja múslima til að taka frí úr vinnu í ramadan til að koma í veg fyrir neikvæðar afleiðingar fyrir aðra í dönsku samfélagi, skrifaði hún (Mbl.is).
Sjónvarpið var með áberandi hlýlega umfjöllun um ramadan og siði múslima fyrir nokkrum dögum, en lét hjá líða að geta þess, að í þeim mánuði hafa verið meiri hryðjuverkaárásir en í öðrum mánuðum að meðaltali, samkvæmt upplýsingum sem HÉR má finna. Þannig voru hryðjuverkaárásir í Mið-Austurlöndum, Norður-Afríku og Suður-Asíu á árabilinu 2006-2015 sex prósent fleiri á ramadan-dögum en öðrum dögum ársins og dráp í ramadan-mánuði 17% fleiri en í öðrum mánuðum.
Menn geta svo reynt að spá í ástæður þessa -- hvort svengd manna geti farið í taugarnar á þeim með þeim hætti að gera ýmsa uppstökkari, ertnari og herskárri eða hvort boðunarkraftur öfga-ímama í moskunum aukist á þessum tíma, og væri hvorugt neitt fagnaðarefni.
Jón Valur Jensson.
(Endurbirt hér að hluta, viðaukar eru þó fyrirferðarmeiri hér, m.a. um fréttirnar í dag frá Danmörku.)
![]() |
Hvatti múslima til að taka frí |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Ísrael, Gyðingar, Mið-Austurlönd, islam | Breytt s.d. kl. 18:57 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Mánudagur, 21. maí 2018
Bilaður prestur? Af Ísraels- og Gaza-málum
Leikur það menn, jafnvel menntaða presta, svona grátt að vera Samfylkingarmenn? Telur hann sér sæmandi að líkja Gyðingum við nazista?
Eða er þetta eftirkastatilfelli eftir að viðkomandi horfði og hlustaði yfir sig á Rúv-fréttir frá Landinu helga?
Spyr sá sem ekki veit.
Eða hvaða augum skyldi Bjarni líta það, að hreyfing, sem Evrópusambandið og Bandaríkin eru einhuga um að skilgreina sem hryðjuverkasamtök og hafa að baki ótal fjöldamorð á saklausu fólki í Ísrael,* þ.e. Hamas-samtökin, áttu sjálf, samkvæmt eigin yfirlýsingu,** 50 manns af þeim 62 sem sagðir voru drepnir við öryggisgirðinguna á landamærum Gaza og Ísraels um daginn?
Myndi jafnvel séra Bjarna, ef hann skoðaði málið af gaumgæfni, blandast hugur um, að það stóð til af hálfu Hamas að ná fram umtalsverðum áfangasigri þessa daga? -- og þá með tvennum hætti fremur en einum, því að til stóð að rjúfa öryggisgirðinguna á nokkrum stöðum, svo að vígamenn Hamas gætu streymt inn á ísraelskt land til að athafna sig með sínum dæmigerða hætti,*** morðum á heilu fjölskyldunum í þorpunum þar og með því að lauma öðrum stríðsmönnum sínum lengra inn í þetta litla land, sem er á stærð við eina stóra sýslu á Íslandi. Og í öðru lagi var alltaf hægt að hafa mikinn ávinning af því, áróðurslega séð, á vettvangi fjölmiðla, ef mikið mannfall yrði í þeirra eigin röðum, að kenna Ísrael um allt saman -- dæmi um s.k. fórnarlambavæðingu sem Hamas hefur ástundað og notar svona atvik sem tilefni, þótt allt frumkvæði atburðanna kæmi frá Hamasmönnum sjálfum. Ekki bað Ísrael um þetta!
Ef tekin væri bókstaflega fullyrðing heilbrigðisráðherrans á Gaza, Mufiz al-Makhalalati (sem er vel að merkja meðlimur Hamas-flokksins), að 60 Palestínumenn hafi verið drepnir við landamærin 14. maí (þ.á m. barnið 8 mánaða, sem einhver stuðningsmaður Hamas var svo "vænn" að taka með sér í óeirðirnar), þá eru þessir 60 (raunar 62 eftir lát tveggja af sárum sínum) um það bil 21 sinnum færri en fórnarlömb Hamasmanna og samherja þeirra í öðrum morðsveitum sem vægðarlaust útrýmdu saklausu fólki í Ísrael á árabilinu 2000-2018.* ----Hamas sá svo um það að verðlauna morðingjana með milljóna-fégjöfum, sem íslenzkir skattborgarar hafa líklega átt sinn þátt í að fjármagna, því að Össur Skarphéðinsson er sagður hafa gaukað 300 milljónum króna að Palestínumönnum, en Hamasmenn hafa lykilaðstöðu til að misnota það til eigin hervæðingar o.fl., auk síns eigin óhófslífs.
Það er undarlegt að presturinn kemur fram með þessa yfirlýsingu sína nú rétt fyrir hvítasunnuhelgina, þegar hann hefði átt að vera búinn að kynna sér málið betur.
Hafði hann of mikið að gera? Og hafði þessi dómharka hans gagnvart Gyðingum í Ísrael kannski verið að krauma með honum í mörg ár? Var hann alltaf ginnkeyptur fyrir hlutdrægni Gróu í Efstaleiti og falsfréttaburði Rúv um Ísraelsmál, sem alið var á í síendurteknum, einhliða ásökunum af hálfu fréttamanns hverju sinni og gjarnan og um þriggja áratuga skeið af hálfu þess, sem sjálfur er sonur nazista?
Ekki er fullyrt hér, að séra Bjarni Karlsson hafi bilazt, en bilað hefur trú hans á manngildi hinnar menntuðu þjóðar Ísraela, þegar hann er farinn að kalla hana "nákvæma eftirlíkingu" nazista!
Ólíklegt má telja, að nákvæm skoðun séra Bjarna á stjórnarháttum Hamas myndi fylla hann hjartnæmri hrifningu. Bjarni hefur t.d. verið mikill baráttumaður fyrir samkynhneigða, en þeir hafa ófáir verið drepnir af Palestínumönnum vegna kynhneigðar sinnar og margir reynt að flýja til Ísraels vegna slíkra ofsókna. Og þessi refsiharka er við lýði í fleiri málum. Samkvæmt frásögn fangavarðarins í einu fangelsanna á Gaza er refsingin við því að reykja hass eins árs fangelsi og síðan execution (aftaka) --- og hvernig? Ef viðkomandi er almennur borgari, er hann hengdur, en ef hann er hermaður, er hann skotinn. Sjá þetta myndband, nálægt 16.15 eða þegar rúmlega 16 mín.eru liðnar frá byrjun. Geysi-víð undirgöngin (nokkur slík a.m.k.) sem Hamasmenn hafa látið leggja frá Egyptalandi til Gaza hafa ekki aðeins verið notuð til vopnaflutninga, heldur líka til að smygla eiturlyfjum í miklum mæli, en þó refsað fyrir slíkt, þegar upp kemst --- en fróðlegt að lesa um bágborið ástandið þarna hjá unglingum o.m.fl.
En það hljómaði sannarlega eins og biluð grammófónplata þegar íslenzkir vinstri menn, illa upplýstir og heilaþvegnir af áðurnefndri Gróu í Efstaleiti, hófu enn á ný upp sinn haturssöng um Ísrael um daginn, þegar ljóst varð, að næsta Eurovision-keppni yrði haldin í Jerúsalem. Þá dygði ekkert minna en sniðganga Ísraels og að hætta þátttöku okkar í keppninni! Ekki heimtuðu sömu vinstri menn að Sovétríkin yrðu boycotteruð vegna Ólympíuleikanna í Moskvu 1980 þegar þau höfðu ráðizt inn í Afganistan á jólum 1979 og hernumið allt landið, en 5-6 miljónir hröktust þá úr landi sem flóttamenn og yfir ein og hálf milljón Afgana hafði fallið, þegar yfir lauk og sovétherinn var dreginn til baka áratug síðar. En gagnvart Ísrael þykir vinstri mönnum sjálfsagt að grípa tækifærið til að boycottera landið af litlu tilefni, og höfðu þeir áður gert tilraun til þess í borgarstjórn Reykjavíkur, sem á þó ekki að fara með utanríkismál.
Til að sjá Ísraelsmál í réttu samhengi frá stofnun ríkisins fyrir 70 árum er bezt að vísa hér í stutta, en afar glögga grein eftir marktækan og menntaðan Íslending, Jón Sigurðsson, fyrrv. skólastjóra, Að komast heim, grein sem birtist í Fréttablaðinu 17. þ.m. Og um Hamas og skuggalegan feril þeirra samtaka má lesa í grein eftir sendiherra Ísraels í Noregi, Raphael Schutz: Í helgreipum Hamas, grein sem fekk ekki inni í Fréttablaðinu, en birtist á Visir.is 18. þ.m.
En hér má sjá dæmi um hugarfar Hamasmanna, í æsingaræðu lögregluforingja á útifundi á Gaza --- þar er kallað eftir útrýmingu Ísraela, og þeir heimta allt Landið helga (sem þeir kalla Palestínu) frá Miðjarðarhafsströndinni að Jórdaná!
Hamas heldur Gazabúum í fangelsi eigin öfga og árásargirni, fyrir utan alla innrætingu barnanna. Gazabúar gætu verið í góðu samstarfi við Ísraela, ef ráðamenn hinna palestínsku væru friðsamir og elskuðu börnin sín meira en þeir hata Ísraela. En rafmagn, vatn og ótrúlega miklar vistir fá Gazamenn frá Ísrael á hverjum degi. Það metur þó Hamas einskis, sbr. árásina um daginn á eina aðflutningastöð við landamærin. Hitt kann Hamas að meta: að fá ómældan hernaðarstuðning frá öfgastjórninni í Teheran.
Það ættu allir að geta gert sér í hugarlund, hversu slæm býti það hefðu verið, ef Hamas hefði fengið að rjúfa öryggisgirðingar á landamærunum og þúsundir, nei tugþúsundir Gazamanna reynt að ryðjast inn í Ísrael og Ísraelsmönnum fá úrræði tiltæk nema (og einkum í hinztu lög) að skjóta á manngrúann. Því hefði umsvifalaust verið lýst í fjölmiðlum sem sambærilegu við fjöldamorðin á Torgi hins himneska friðar í Peking, þegar um 2.000 stúdentar voru myrtir, eða árás kósakkanna á óvopnaðan mannfjöldann við Vetrarhöllina í St. Pétursborg 22. janúar 1905, "blóðuga sunnudaginn", þegar allt að þúsund manns féllu eða særðust eða tróðust undir. Með líkurnar á slíkum hörmungum fyrir augum er eðlilegt að varnarviðbrögð Ísraela voru harkaleg frá upphafi, með táragasi og skotvopnum, þótt bein dráp að yfirlögðu geti ég undirritaður ekki varið í neinum tilfellum nema þeim hugsanlega, sem fólu í sér vörn gegn beitingu Hamasmanna á byssum eða sprengjum.
* Sjá hér: http://www.mfa.gov.il/MFA/ForeignPolicy/Terrorism/Palestinian/Pages/Victims%20of%20Palestinian%20Violence%20and%20Terrorism%20sinc.aspx --- og skoðið hve "atburðirnir" gerðust þarna með fárra daga millibili, stundum fleiri en einn á dag --- allt morð! --- skoðið t.d. allan fórnarlambalistann, þ.m.t. heilu fjölskyldurnar, á tveimur dögum, 1. júní og 9. ágúst 2001, og voru það þó alls ekki mestu hryðjuverkin! -- Oft tala jafnvel herskáir Palestínumenn um Jerúsalem sem borg friðarins og hömruðu enn á því, þegar Bandaríkin opnuðu þar sendiráð sitt 14. þ.m. En Hamas-hryðjuverkasamtökin (sem stjórna Gaza-svæðinu) og nokkur önnur samtök (einkum al-Fatah) hafa þó gegnum tíðina sýnt Jerúsalem sér í lagi þann áhuga að fremja þar ótrúlegan fjölda hryðjuverka, sjá hér: https://en.wikipedia.org/wiki/Category:Terrorist_incidents_in_Jerusalem -- fróðlegur lestur fyrir illa upplýsta!
** Sbr. hér: "Salah Bardawil, a senior Hamas official, told Palestinian news outlet Baladna TV that 50 out of the 60 who died on Monday were members of his organization, while the rest were civilians."
*** Sjá þessa afskaplega fróðlegu vefsíðu, eftir Richard Kemp, sem gegndi herþjónustu sem yfirmaður í brezka hernum í Norður-Írlandi, Afganistan, Írak og Balkanríkjum: Smoke & Mirrors: Six Weeks of Violence on the Gaza Border.
Jón Valur Jensson.
Ísrael, Gyðingar, Mið-Austurlönd, islam | Breytt s.d. kl. 22:01 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Miðvikudagur, 16. maí 2018
Vinstri menn mættu hugleiða þetta vegna fjandsemi sinnar við Ísrael
Það er aftur farið að tala um Gyðinga sem lakasta þjóða, jafnvel Erdodan þykist geta lastað þá!!! Hitt mætti hann og vinstri hávaðamenn hugleiða, að Gyðingar hafa í sínum röðum glæsilegan fjölda Nóbelsverðlaunahafa (892 alls til 2017, þ.e. 22,5% allra), margfalt fleiri en múslimar ca. 60 þjóða, sem eru með einungis 12 Nóbelsverðlaunahafa til 2015, en kristnir menn eru með 65% allra og trúlausir með margfalt minna. Sjá listana hér: https://en.wikipedia.org/wiki/Category:Lists_of_Nobel_laureates_by_religion
Nafnalistarnir, sem þarna má finna (smelli menn á línurnar), segja þó ekki nærri því eins mikla sögu og allt hitt, sem þessir menn og konur hafa áorkað og gert mannkyni til góðs með uppgötvunum sínum, framþróun vísinda og fræða og frumlegri hugsun í bókmenntum og öðrum greinum, þar sem áhrifa þeirra gætir víða.
Jón Valur Jensson.
Ísrael, Gyðingar, Mið-Austurlönd, islam | Breytt s.d. kl. 17:20 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Mánudagur, 14. maí 2018
Stór dagur fyrir Ísrael
14. maí er hamingjudagur fyrir Ísrael. Fyrir réttum 70 árum var lýðveldið Ísrael stofnað, og í dag var sendiráð Bandaríkjanna opnað við hátíðlega athöfn í höfuðborginni Jerúsalem. Hér má enn horfa á upptöku frá þeirri stund (smellið á tengilinn):
bein útsending
en þar töluðu fulltrúar beggja landanna, einkum sendiherra Bandaríkjanna og Benjamin Netanyahu, forsætisráðherra Ísraels, sem og til dæmis dóttir Trumps Bandaríkjaforseta og maður hennar af Gyðingakyni, mjög einarður í góðri ræðu, auk markverðra trúarleiðtoga, rabbía og magnaðs baptista, og fallegur söngur ungrar konu, með trúarlegu ívafi, var einnig á dagskránni.
Biðjum Jerúsalem friðar! Guðs blessun sé yfir Landinu helga.
Jón Valur Jensson.
![]() |
Endurnefna fótboltalið eftir Trump |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Ísrael, Gyðingar, Mið-Austurlönd, islam | Breytt s.d. kl. 23:49 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Sunnudagur, 13. maí 2018
Sízt alls eru Gyðingar öðrum framar hefnigjarnir
Oft er það haft til marks um hefnigirni Gyðinga, að þeir taki bókstaflega orð Gamla testamentisins um "auga fyrir auga og tönn fyrir tönn" (III.Mós.24.20, samanber hins vegar Matth.5.39*). En í 1. lagi var Mósebókarreglan einungis krafa um að ganga ekki lengra í refsingu en rangsleitnin hafði verið, sem refsa mætti fyrir, og í 2. lagi er augljóst af friðsemi Gyðinga gagnvart Þjóðverjum eftir fall ógnarstjórnar nazista, sem létu myrða sex milljónir Gyðinga, að sízt eru Gyðingar öðrum framar hefnigjarnir.
Herskáir Palestínumenn þykjast eiga harma að hefna á Ísraelsmönnum og láta sem það réttlæti skæruhernað þeirra og hryðjuverk á undanförnum áratugum og að enn þann dag í dag réttlæti það margar atlögur að jafnvel óbreyttum borgurum Ísraelsmanna, konum þeirra og börnum! Hér mættu Palestínumenn taka Gyðinga sér til fyrirmyndar: Ekki hafa þeir hefnt sín af grimmd á þýzku þjóðinni! -- og aldrei í raun endurgoldið þjóðarmorðið á Gyðingum í Þriðja ríki Hitlers og hernámslöndum þess.
* Orð Jesú í Matth.5.39 (1981-þýðingin): "En ég segi yður: Rísið ekki gegn þeim, sem gerir yður mein. Nei, slái einhver þig á hægri kinn, þá bjóð honum einnig hina." -- "Hörð" túlkun á þessu er, að með þessu gangi Kristur beinlínis þvert gegn texta III. Mósebókar. En í raun gengur hann í sömu átt og birzt hafði í vilja Skaparans, Guðs Föður almáttugs, í Gamla testamentinu: þ.e. að takmarka og tempra beri refsiviðbrögð við árásum manna. Fullkomnast getur það orðið í samskiptum einstaklinga: þar, umfram deilur í réttarsal eða átök á vígvelli, hafa menn enn möguleikann á því að snúa hjarta mótstöðumannsins með sjálfsfórn og skilningsríkri mildi gegn móðgunar- og árásargirni hans. (En með þessu talar Kristur þó ekki gegn því, að sum mál geti, þegar önnur úrræði þrýtur, þurft að leysa með úrskurði dómara, sbr. Matth. 5.25.)
"Eins og þér viljið að aðrir menn geri við yður, svo skuluð þér og þeim gera. ... Elskið óvini yðar og gerið gott og lánið án þess að vænta nokkurs í staðinn, og laun yðar munu verða mikil og þér verða börn Hins hæsta, því að hann er góður við vanþakkláta og vonda. Verið miskunnsamir, eins og faðir yðar er miskunnsamur," segir Jesús sjálfur (Lúkasarguðspjall, 6,31, 35-36.)
Jón Valur Jensson.
Ísrael, Gyðingar, Mið-Austurlönd, islam | Breytt 15.5.2018 kl. 03:26 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Þriðjudagur, 8. maí 2018
Það er nefnilega það! - "Koma í veg fyrir framhjáhald" með lagaþvingun. Skoðið ummæli múslimaleiðtoga á Íslandi!
Ímam Skógarhlíðar-moskunnar trúði Rúv fyrir þessu:
Ahmad segir að samkvæmt Kóraninum sé múslimskum konum skylt að ganga með blæju. Þó sé það þannig að rétt eins og kristnir menn fari ekki alltaf eftir boðorðunum tíu þá séu múslimar ekki fullkomnir.
Það er nefnilega það! En væru konurnar "fullkomnar", væru þær allar með blæju! Gaman að lifa, maður! -- og þurfa svo ekkert að velja, láta bara pabba gamla um að velja kvonfangið fyrir sig, út frá hans kunningjaböndum!
En áfram heldur þessi Ahmad Seddeeq, ímam Menningarseturs múslima á Íslandi:
Sumir kjósi að fara ekki eftir einhverju, til dæmis ákveði sumar konur að ganga ekki með blæju. Hann útskýrir hvers vegna múslimum finnst blæjan nauðsynleg. Manneskjur séu breyskar og ef kona gengur um án blæju og sýnir þar með fegurð sína öðrum en eiginmanni sínum geti það vakið áhuga annars karlmanns á henni og þannig leitt til framhjáhalds. Hann segir karla og konur vera ólík þegar kemur að fegurð. Konur hugi meira að útlitinu en karlar og því sé ekki ástæða til þess að karlmenn gangi með blæju.
Það er nefnilega það! Allt einfalt á bókina lært hjá honum.
Hann segir að það sé ekki verið að gera þá kröfu að konur líti illa út ...
Það er nú eins gott!
... þær megi klæðast fallegum fötum en það séu ákveðin takmörk. Fötin megi ekki vera of þröng eða flegin. Hann segir kröfuna um að hylja hár sitt og klæðast látlausum fatnaði ekki endilega alltaf vera það sem einstaklingurinn vill, en líkt og með mörg lög sé það í þágu stöðugleika samfélagsins í heild. Það minnki líkur á skilnaði og komi í veg fyrir að fjölskyldur sundrist.
Já, "ekki endilega alltaf það sem einstaklingurinn vill," oft fer þetta fram (já, daglega, áratugum saman!) einmitt þvert á móti því sem einstaklingurinn vill!
Ahmad vekur athygli á því að í Íslam sé ekki gerð krafa á neinn um að hylja andlit sitt, einungis hárið. Sumar konur vilji þó gera það, því að þær álíti sig óvenju fallegar.
Það er nefnilega það! Þá vitum við að þær fegurstu (a.m.k. að eigin áliti) eru einmitt þær sem mest eru huldar í kuflum sínum og slæðum, það sé þeirra eindreginn vilji!
JVJ tíndi saman og gerði sínar athugasemdir.
Ísrael, Gyðingar, Mið-Austurlönd, islam | Breytt s.d. kl. 11:44 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fimmtudagur, 3. maí 2018
Forseti Palestínu segir Gyðinga hafa sjálfa kallað yfir sig helförina!
Mahmoud Abbas, forseti Palestínu, hefur nú rækilega undirstrikað Gyðingahatur sitt, sem á reyndar rætur allt til háskólaára hans, ef ekki beinlínis í Gyðinga-fjandsamlegum ummælum Kóransins og enn frekar í ævisagnaþáttum Múhameðs (Al-sira).
Það er skammarlegt að nútíma-þjóðarleiðtogi tali með þeim hætti sem Abbas ástundar --- að segja Gyðinga hafa sjálfa kallað yfir sig helförina! --- og að þessum manni og siðvana stjórn hans sé haldið uppi á milljarða-framlagi Evrópusambandsins. Meðal ljótustu verka ríkisstjórnar hans er að borga há verðlaun handa hverjum þeim, sem drepur Ísraelsmann!
Jón Valur Jensson.
Ísrael, Gyðingar, Mið-Austurlönd, islam | Breytt s.d. kl. 12:59 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þriðjudagur, 20. febrúar 2018
Kristin er afstaða umskurnar-úthrópenda ekki!
Ekki gengur þeim mönnum kristindómur til, sem úthrópa í raun Maríu og Jósef og foreldra Jóhannesar skírara sem "barnaníðinga" og með fleiri ljótum stóryrðum um umskurn sveinbarna.* Andstyggð er að því, við umhugsun, að menn skrifi þannig, en er þeim mönnum líkast, sem þegar hafna kristinni trú. Hitt er undarlegra þegar aðrir, meintir eða yfirlýstir kristnir, tala og skrifa á þann veg. Þeir ættu að hugsa sinn gang, átta sig á grundvelli, forsendum og samhengi trúar sinnar, og það mættu raunar kristnir menn gera í hverjum líðandi mánuði: að íhuga trú sína og rök hennar, eins og þau liggja fyrir í helgum ritningum og í játningum kristinnar kirkju.
* Hér eru dæmi af Facebók og Visir.is um orðbragð þeirra, sem tala um umskurn sveinbarna sem "ofbeldi" og "limlestingu", "mannfjandsamlega" venju", "ósóma", "afskræmingu á kynfærum ómálga barns", "pyntingu (Hersir Aron Ólafsson), "ofbeldi á kornabörn" (Viðar Pétursson, herskár trúleysingi), "að misþyrma börnum sínum" (Arnfridur Einarsdottir), misþyrming á ómálga börnum" (Steinar Harðarson). Stór hluti þessa fólks er hins vegar hlynntur grimmdarlegum fósturdrápum, jafnvel að geðþótta umsækjenda, jafnvel allt upp í fulla fimm mánuði meðgöngu, og þá er ekki verið að hugsa um kvöl hins ófædda barns, jafnvel ekkert hirt um að setja í það deyfilyf! -- það er eins og það eigi bara að kveljast sem mest fyrir meintu "kvenréttindin", rétt eins og í partial-birth abortion að ósk Hillary og Obama, og er þó helmingur fórnarlamba fósturvíga meybörn!
Frumvarp Silju Daggar framsóknarkonu um bann við umskurn sveinbarna að viðlagðri allt að 6 ára fangelsisvist vekur nú athygli og hneykslan víða um lönd og er fordæmt jafnt af kirkjuleiðtogum sem forsvarsmönnum Gyðinga. Dýpra er á viðbrögðum múslima, en þetta spyrzt óhjákvæmilega út meðal islamista, ef verður að lögum (þ.e.a.s. enn einum ólögum frá Alþingi), og afleiðingarnar gætu orðið skelfilegar, jafnvel mannvíg gegn Íslendingum erlendis.
Hér heima taka t.d. Agnes Sigurðardóttir biskup (sjá tengil neðar) og hin hyggna Lilja Alfreðsdóttir (fyrrv. utanríkisráðherra og samflokkskona Silju Daggar) afstöðu gegn þessu frumvarpi, og er það að vonum, vitlausara frumvarp er vandfundið, enda felur það í sér fullan vilja til trúarbragðaofsóknar, en Ísland yrði fyrst landa í víðri veröld til að bæta þeim nýja þætti við Gyðingahatur fyrri tíma.
Jón Valur Jensson.
![]() |
Leggst gegn því að umskurður verði refsiverður |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Ísrael, Gyðingar, Mið-Austurlönd, islam | Breytt s.d. kl. 19:23 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Miðvikudagur, 14. febrúar 2018
Dæmi um hvernig oft má rekja slóð mannréttinda til trúar
"Það má rekja mörg mannréttindi okkar beint til trúarbragða, en stundum er slóðin flóknari en hún virðist. Kýrus konungur Persíu var til dæmis upphafsmaður þess afkima mannréttinda sem við köllum trúfrelsi, en áður en hann færði það í lög var það algjörlega óþekkt hugtak. Ástæðan er sú að Kýrus þessi, sem er talað um í Biblíunni sem "helgan mann", var afkomandi Estherar, gyðingastúlku sem giftist Persakonungi (og lesa má um í Biblíunni) og því gyðingur að uppruna, þó hann væri það ekki að menningu. Hann vissi það, og hann vissi að formóðir hans Esther hafði forðað gyðingum frá algjörri útþurrkun. Á þeim tímum var fyrsta tilraunin til algjörrar helfarar á gyðingum, og skipað að drepa hvern einasta gyðing í Persaveldi. En Esther taldi konunginum, sem vissi lítið af þessu, hughvarf. Þetta fylgdi síðan þessari ætt og varð til þess að fóstra með henni manngæsku og brennandi réttlætiskennd, sérstaklega fyrir hönd minnihlutahópa, sem loks varð færð í lög af Kýrusi þeim sem setti þetta sérstaklega í letur, eftir að það var búið að gerjast innra með fjölskyldu hans í margar kynslóðir.
Og án hans, og án gyðinga, væri trúfrelsi ekki til, og þú og ég hefðum það ekki.
Þetta er dæmi um hvernig oft má rekja slóð mannréttinda til trúar, jafnvel þar sem það er ekki augljóst. Mörg önnur mannréttindi koma aftur á móti beint upp úr trúarritunum og/eða siðvenjum ólíkra trúarbragða."
Þannig ritaði Jón nokkur á vefslóð hjá Páli Vilhjálmssyni fyrir meira en hálfum áratug. Ekki veit undirritaður, hver Jón þessi var eða er, en athyglisvert er innihaldið í færslu hans. Hann hefur þegar gert innlegg sitt opinbert, ekki skilið eftir annað en skírnarnafn sitt og gefur þannig öðrum frjálsar hendur með að nota texta sinn.
JVJ.
Ísrael, Gyðingar, Mið-Austurlönd, islam | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Sunnudagur, 4. febrúar 2018
Ef þetta er í alvöru ástandið í Bretlandi, er fjölgun múslima í norðlægum löndum þá í alvöru eftirsóknarverð?
Ísrael, Gyðingar, Mið-Austurlönd, islam | Breytt s.d. kl. 16:08 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Um bloggið
Kristinn þjóðarflokk?
Nýjustu færslur
- Þingmenn með og móti lífinu: Þess skal minnzt hvernig einstak...
- Hvers lags barnamálaráðherra er það sem samþykkir ólög um þj...
- Alveg kostulegt að sjá eina stjórnarskrártillöguna talað...
- Samherjar okkar í Noregi taka afstöðu með frelsi samkynhneigð...
- Huggunarstef
- Talað af reynslu
- Af raunverulegri orsök þeirrar kollsteypu vestrænna þjóða sem...
- Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir fer út fyrir verksvið sitt og á...
- Einhliða áróðursstarfsemi Rúv um mál Ísraels og Palestínu sýn...
- Blákaldur sannleikurinn sagður um fóstureyðingar (m/ísl. þýð...
- Brot úr kristindómi Látra-Bjargar
- Kristið og farsælt hjónaband -- munið eftir ástarorðunum
- "Drag Queen Storytime" fyrir 3ja ára er nýtt innrætingarpróg...
- Ekki hefur verið nógsamlega unnið að velferð barna og fjölsky...
- Á að tryggja réttindi allra barna til þess að þekkja uppruna ...
Færsluflokkar
- Abortion
- Alræðisstefnur
- Andleg mál; Biblíutextar
- Áfengis- og fíkniefnamál
- Álver, stóriðja
- Bandaríkin
- Biblíutextar
- Bloggar
- Borgarmálefni
- Bretland (UK)
- Bækur
- Downs-heilkenni
- Dýravernd
- Dægurmál
- ESB
- Eva S. Einarsdóttir: pistlar, greinar, hugvekjur
- Evrópumál
- Ferðalög
- Fiskveiðar, útvegsmál
- Fíkniefnaneyzla og -varnir
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Fólksfækkunarvandi
- Fullveldi og sjálfstæði þjóðar
- Heilbrigðismál
- Heimspeki
- Hryðjuverk og öfgastefnur
- Icesave-málið
- Innflytjendamál
- Ísrael, Gyðingar, Mið-Austurlönd, islam
- Íþróttir
- Kjaramál
- Kommúnismi, sósíalismi, Marxismi
- Konur, kvennabarátta, kvenréttindi
- Kristnir Íslendingar
- Kvikmyndir
- Kynhneigðamál
- Landbúnaður, jarðamál
- Lífstíll
- Líknardráp eða líknandi meðferð?
- Ljóð
- Löggæsla
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Miðaldasaga og kristni
- Nazismi, fasismi, Þriðja ríkið
- Norræn málefni
- Ófæddir, lífsvernd
- Pepsi-deildin
- Samgöngur
- Samtökin, skipulag, félagslífið
- Sjónvarp
- Skoðanakannanir
- Spaugilegt
- Spilling, hugsanleg spilling
- Spil og leikir
- Staðgöngumæðrun
- Stjórnarskrármál
- Stjórnmál og samfélag
- Sveitarstjórnarkosningar
- Sveitarstjórnarmál
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Uppeldis- og fjölskyldumál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Varnarmál og hernaður
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
- Vændi
- Þróunaraðstoð, 3. heimurinn
Tenglar
Mikilvæg fréttamálefni
- Stjórnarskrármálið, fréttaknippi Mbl.is
- Vín í verzlanir? (fréttaknippi)
- Staðgöngumæðrun, fréttaknippi Mbl.is
- Afglæpavæðing vændis, fréttaknippi Mbl.is
- Viðskiptaþvinganir v. Krímskaga? Fréttaknippi Mbl.is
- Umsókn um ESB, fréttaknippi á Mbl.is Um Össurarumsóknina og framgang málsins
- Fréttaknippi um Icesave Hér má sjá margar Icesave-fréttir á Mbl.is, og um sumar þeirra höfum við bloggað á Krist.bloggi
- Knippi á Mbl.is um Reykjavíkurflugvöll Þarna má finna ýmsar fréttir Mbl.is um málið, þær nýjustu efst á síðunni
Áhugavert um kristna stjórnmálaflokka
- Kristnir stjórnmálaflokkar í 36 löndum Evrópu - en ekki hér? Hugleiðingar um hvort kristinn flokkur sé tímabær hér sem víðar, með svörum gegn gagnrýni
- Kristnir stjórnmálaflokkar í Evrópu Þetta er langur listi, litríkur og fróðlegur!
Lífsverndarmál
- Fyrstu vikur lífsins Rekur þroskaferil mannslífs í móðurkviði (með mynd)
Yfirlit fyrri greina:
- 15.10.200920.11.2009 Þriðja yfirlitið um greinar á Krist.blog.is
- 19.5. 200914.10. 2009 2. greinayfirlitið á Krist.blog.is
- 9.3. 200715.4. 2009 Yfirlit pistla á Krist.blog.is frá upphafi 2007 til vors 2009
Bloggvinir
-
Guðmundur Pálsson
-
Jón Valur Jensson
-
Rósa Aðalsteinsdóttir
-
Tómas Ibsen Halldórsson
-
Helga Kristjánsdóttir
-
Þórarinn Þ Gíslason
-
Hafsteinn V Eðvarðsson
-
Ólafur Þórisson
-
Snorri Óskarsson
-
Steindór Sigursteinsson
-
Arnar Styr Björnsson
-
Guðsteinn Haukur Barkarson
-
Lífsréttur
-
Samtök um rannsóknir á ESB ...
-
Aida.
-
Axel Jóhann Axelsson
-
Axel Þór Kolbeinsson
-
Aðalbjörn Leifsson
-
Baldur Gautur Baldursson
-
Baldur Hermannsson
-
Benedikta E
-
Bergur Thorberg
-
Bjarni Kjartansson
-
Björn Heiðdal
-
Brosveitan - Pétur Reynisson
-
Böðvar Ingi Guðbjartsson
-
Davíð Örn Sveinbjörnsson
-
Dóra litla
-
Elvar Atli Konráðsson
-
Emil Örn Kristjánsson
-
Eygló Hjaltalín
-
Eyþór Laxdal Arnalds
-
Gunnar Rögnvaldsson
-
Guðbjörg Fortune Sigurðardóttir
-
G.Helga Ingadóttir
-
Guðmundur Júlíusson
-
Guðmundur St Ragnarsson
-
Haraldur Hansson
-
Guðni Karl Harðarson
-
Guðni Már Henningsson
-
Halldóra Hjaltadóttir
-
Halldóra Lára Ásgeirsdóttir
-
Haraldur Baldursson
-
Helena Leifsdóttir
-
Helga Þórðardóttir
-
Helgi Jónsson
-
Högni Jóhann Sigurjónsson
-
Hörður Finnbogason
-
Janus Hafsteinn Engilbertsson
-
Ingibjörg
-
Ingvar Leví Gunnarsson
-
Jakobína Ingunn Ólafsdóttir
-
Jens Sigurjónsson
-
Jeremía
-
Jón Aðalsteinn Jónsson
-
Jón Baldur Lorange
-
Jón Snæbjörnsson
-
Jóna Sigurbjörg Guðmundsdóttir
-
Karl V. Matthíasson
-
Kristinn Ágúst Friðfinnsson
-
Kristján Björnsson
-
Loftur Altice Þorsteinsson
-
Mofi
-
Ragnar Kristján Gestsson
-
Predikarinn - Cacoethes scribendi
-
Páll Vilhjálmsson
-
Ragnar Geir Brynjólfsson
-
Ragnhildur Kolka
-
Ruth
-
Rödd í óbyggð, kristilegt félag
-
Samtök Fullveldissinna
-
Sigríður Laufey Einarsdóttir
-
Sigurlaug B. Gröndal
-
Sigurður G. Tómasson
-
Sigurður Sigurðsson
-
Sigvarður Hans Ísleifsson
-
Stefán Friðrik Stefánsson
-
Stefán Ingi Guðjónsson
-
Sverrir Halldórsson
-
Theódór Norðkvist
-
Tryggvi Hjaltason
-
Unifer
-
Árni þór
-
Ívar Pálsson
-
Ólafur Jóhannsson
-
Ómar Ragnarsson
-
Úlfar Þór Birgisson Aspar
-
Þormar Helgi Ingimarsson
-
Þorsteinn Siglaugsson
-
Þórdís Ragnheiður Malmquist
-
Þórólfur Ingvarsson
-
Jóhann Hauksson
-
Þórður Guðmundsson
-
Óskar Sigurðsson
-
Tómas
-
Gunnlaugur Halldór Halldórsson
-
Guðrún Sæmundsdóttir
-
Óttar Felix Hauksson
-
Júlíus Björnsson
-
Kristinn Ásgrímsson
-
Gestur Halldórsson
-
Kristinn Ingi Jónsson
-
Heimssýn
-
S. Einar Sigurðsson
-
Gunnar Skúli Ármannsson
-
Birna M
-
Snorri Magnússon
-
Jakob Þór Haraldsson
-
Gunnar Helgi Eysteinsson
-
Gústaf Níelsson
-
Valdimar H Jóhannesson
-
Ólafur Ragnarsson
-
Jón Ríkharðsson
-
Magnús Þór Hafsteinsson
-
Kristinn Karl Brynjarsson
-
Högni Hilmisson
-
Þorsteinn Valur Baldvinsson
-
Ingibjörg Guðrún Magnúsdóttir
-
Nonni
-
Tímanna Tákn
-
ÞJÓÐARHEIÐUR - SAMTÖK GEGN ICESAVE
-
Friðrik Agnar Ólafsson Schram
-
Samstaða þjóðar
-
Bleika Eldingin
-
Hrannar Baldursson
-
Jón Lárusson
-
Bjarni Harðarson
-
Ómar Gíslason
-
Haraldur Haraldsson
-
S i g u r ð u r S i g u r ð a r s o n
-
Örn Ægir Reynisson
-
Barði Bárðarson
-
Birgir Viðar Halldórsson
-
Jón Pétur Líndal
-
Gunnar Heiðarsson
-
Kristján Hilmarsson
-
Hörður Sigurðsson Diego
-
Kristinn D Gissurarson
-
Birgir Þór Júlíusson
-
Vera
-
Jónas Pétur Hreinsson
-
Páll Þorvaldsson
-
Magnús Ragnar (Maggi Raggi).
-
Áslaug Friðriksdóttir
-
Guðjón E. Hreinberg
-
Jón Valur Jensson
-
Gústaf Adolf Skúlason
-
Kristinn Eysteinsson
-
K listi Skagafjarðar
-
Kristján P. Gudmundsson
-
Halldór Þormar Halldórsson
-
Valdimar Samúelsson
-
Íslenska þjóðfylkingin
-
Ásgrímur Hartmannsson
-
Eyjólfur Jónsson
-
Gunnlaugur I.
Eldri færslur
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Febrúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (11.12.): 1
- Sl. sólarhring: 21
- Sl. viku: 594
- Frá upphafi: 471614
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 499
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar