Færsluflokkur: Bretland (UK)

Ef þetta er í alvöru ástandið í Bretlandi, er fjölgun múslima í norðlægum löndum þá í alvöru eftirsóknarverð?

Í eftirfarandi enskum texta kemur fram, að ekki aðeins eru múslimar orðnir borgar­stjórar í ýmsum stærstu borgum þar, heldur eru moskur orðnar 3.000, sjaría­dóm­stól­ar 130, 78% múslima­kvenna eru án vinnu og á sócíalnum, en 63% karlanna!
 
 
Mynd frá Petur Thor.
Úr myndum sem Petur Thor á og birti á Stjórnmálaspjalli Facebókar.
 
 
 
Hér (á Stjórnmálaspjallinu) er búið að snúa Tinnabókarforsíðu upp á ástandið í Svíþjóð:
 
Mynd frá Smari Gissurarson.
 
Mynd frá Arnór Valdimarsson.
 
 
 
 
Og Jens G. Jensson í Íslensku þjóðfylkingunni deildi þessum tengli:

Hvað segja menn um þetta? Danskur ráðherra(frú) segir sannleikann.

-Vi har tapt overfor islam, fordi denne religionens tilhengere tyr til våpen, vold og terror. Derfor er det ingen teater i Europa som våger å sette opp et islamkritisk stykke. Man vet det vil utløse ramaskrik fra de krenkede rekkene, og en dog…
 
RIGHTS.NO
 
JVJ tíndi saman af Stjórnmálaspjalli Facebókar.
 

Meinsæri um meinta nauðgun er refsivert

Jemma Beale sakaði níu menn um að hafa nauðgað sér og sex...

Vitaskuld á fólk að bera ábyrgð á fölskum ákærum. Jemma Beale sakaði níu menn um að hafa nauðgað sér og sex aðra um að hafa misþyrmt sér kyn­ferðis­lega. Hún var í dag dæmd í 10 ára fang­elsi fyr­ir ásak­an­irn­ar. Jemma lagði fram fjór­ar kær­ur á  þriggja ára tíma­bili.

 
All­ir menn­irn­ir 15 voru henni ókunn­ug­ir, að sögn frétta­vefjar BBC, en ein ákær­an leiddi til þess að maður var dæmd­ur til sjö ára fang­elsis­vist­ar.

Úrsk­urðaði dóm­stóll­inn Beale seka um mein­særi og fyr­ir að hindra fram­gang rétt­vís­inn­ar og dæmdi hana seka til 10 ára fang­elsis­vist­ar.

„Þessi rétt­ar­höld hafa leitt í ljós, hafi það ekki verið aug­ljóst fyr­ir, að þú er mjög svo sann­fær­andi lyg­ari og að þú nýt­ur þess að litið sé á þig sem fórn­ar­lamb,“ sagði dóm­ar­inn Nicholas Loraine-Smith. 

„Þessi brot byrjuðu venju­lega sem ölv­un­ar­tilraun til að öðlast samúð maka, eða til að vekja af­brýðisemi hjá henni,“ bætti hann við. „All­ar byrjuðu þær á hvat­vís­an hátt, en það sem er ein­stak­lega óhugn­an­legt er hversu staðföst þú varst í ásök­un­um sem þú viss­ir að væru rang­ar.“ (Mbl.is, leturbr. hér)

Já, þið tókuð rétt eftir, maki hennar var (og er enn?) kona, enda kemur það strax fram við að gúgla eftir upplýsingum um hana, sbr. hér:

Lesbian fantasist invented 15 rapes and sexual assaults which saw man jailed to get sympathy from girlfriends, court ...

Telegraph.co.uk - 10 hours ago

En því er minnzt hér á, að Jemma þessi er sambandi við aðra manneskju af sama kyni, að ekki er óalgengt að sjá talað um samkynhneigða eins og þeir séu lausir við ýmislegt það sem gagnkyn­hneigðir gerast sekir um. En ekki verður hægt að hreinsa hana af þessum glæp. Spurning ennfremur hvort hún beri sérstakan kala til karlmanna, jafnvel manna sem hún hefur aldrei hitt!

Sak­sókn­ar­inn Madeleine Wol­fe sagði rétt­in­um að lög­regla hefði eytt 6.400 stund­um í að rann­saka lyg­ar Beale og að kostnaður­inn við rann­sókn­ina hlypi á hundruðum þúsunda punda. (Mbl.is)

Ennfremur, takið eftir:

„Mál eins og þetta fela í sér raun­veru­lega hættu á að kona sem hef­ur verið mis­notuð kyn­ferðis­lega kæri það ekki til lög­reglu af ótta við að henni verði ekki trúað,“ sagði Wol­fe.

„Falsk­ar ásak­an­ir eru lík­leg­ar til að hafa þau öf­ug­snúnu áhrif að auka lík­urn­ar á að sek­ir menn gangi laus­ir.

Já, og vitaskuld hefur slíkt meinsæri skelfilegar afleiðingar fyrir þá, sem ranglega eru ásakaðir:

Mahad Cassim, sem dæmd­ur var til 7 ára fang­elsis­vist­ar vegna nauðgun­ar­kæru Beale, sagði rétt­in­um að kær­an hefði haft mik­il áhrif á líf sitt.

Fleira má lesa um þetta hryggilega mál í fréttinni (sjá tengil hér neðar).

En það, sem er kannski alvarlegast fyrir okkur Íslendinga að hugleiða í þessu sambandi, er þetta: Höfum við ekki sjálfir dæmi um slíkt meinsæri (einu sinni -- eða oftar?) og það einmitt í slíkum málum? Hvernig fór um það eða þau mál? Var dæmt í þeim?

Jón Valur Jensson.


mbl.is 10 ára dómur fyrir falskar nauðgunarkærur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sade syngur í þágu mannúðar

p01bqmq4Sade Turned Down Jay-Z Collabo Because She's 'Scared'  

Hér er hin einstaklega hæfileika­mikla tónlistarkona Sade, sem er hálf­brezk og hálf­nígerísk, f.1959, með söng sinn og mynd­band með góðri og vekj­andi hvatn­ingu til að hjálpa fátæk­um og bág­stöddum í Afríku: https://www.youtube.com/watch?v=yoLoEw8D0Bg

Meðal fræg­ustu laga hennar (og félaga) eru Smooth operator (nr.2 hér á eftir) og eins lag nr.3: Your Love Is King, á eftir­farandi myndbandi með miklu fleiri vin­sælum lögum hennar: https://www.youtube.com/watch?v=qVv_9jGbgfU  En þetta er enn betra myndband, leikið og með henni, glæsilegri í kvikmynd, með Smooth Operator. Þarna sem víðar nýtur saxófónninn í bandinu hennar sín vel.

Og hér er grein um hana á Wikipediu  Og svo geta menn séð hana syngja hér á skemmti­legu mynd­bandi sem er komið með yfir 45 milljónir áhorfa og 197 þúsund læk! : https://www.youtube.com/watch?v=C8QJmI_V3j4

Næsta lag er þar kannski No Ordinary Love, eitt af hennar fallegu, þar sem einstök röddin nýtur sín vel, verður næstum himnesk og lífsgleðin smitandi. Og hér er í beinu framhaldi vísa undirritaðs til hennar:

  • You gave us all the love that you could give,
  • and so you help us that we better live,
  • illumined by your voice so clear in th´ air
  • and haunted by your sweetness everywhere,
  • forgetting no small sister, brother in your art,
  • crying for their rescue from your solid heart.

Sade nýtur mikillar virðingar í heimalandi sínu, Bretlandi, hefur hlotið fjölda tónlistar­verðlauna og er heiðruð sem Commander of the British Empire (CBE).

JVJ.


Morðárásir sem birta það versta og bezta í mannfólkinu

Frá 11. sept. 2001 vitum við að hugsanleg fórnarlömb hryðjuverka reyna samt í mörgum tilfellum að verja sitt fólk, hætta jafnvel lífi sínu fyrir aðra. Óhugnaði gær­kvöldsins vegna islamskra trú­ar­hatursmanna var ekki aðeins mætt með flótta, heldur líka varn­ar­við­leitni til að hindra eða tefja ódæðis­verkin og einnig til að koma særðum til hjálpar:

Alex var á bar skammt frá Borough-markaðnum [í Lundúnum] og sá unga konu, rétt rúm­lega tví­tuga, koma inn á bar­inn. „Það blæddi mikið úr hálsi og munni henn­ar. Það leit út eins og hún hefði verið skor­in á háls en fólk hópaðist að henni til aðstoðar,“ sagði Alex. (Mbl.is) 

Og annað dæmi hér: 

Ger­ard var á svæðinu við Borough-markaðinn, þar sem þrír árás­ar­menn gengu um vopnaðir hníf­um og réðust á fólk. Hann sagði að sér hefði verið ógnað.

„Ég henti ein­hverju í átt­ina að þeim, ég held að það hafi verið stóll, og ég sá að hann fór í bakið á ein­um þeirra,“ sagði Ger­ard.

„Í kjöl­farið á því hlupu þeir í átt­ina að mér og reyndu að stinga mig. Ég hljóp burt og vissi að ef ég hrasaði þá myndi ég deyja,“ bætti Ger­ard við. (S.st.)

Þetta eru skelfilegar hliðar nútímalífs þar sem vandamál hafa safnazt saman í þankagangi afvegaleiddra manna sem eru reiðubúnir að láta tilganginn helga meðalið til að valda öðrum sem mestum skaða og þjáningum -- allt fyrir sína meintu guðshugmynd og í þjónustu við grimmustu samherja sína.

"Af ávöxtunum skuluð þér þekkja þá," sagði Kristur, og það á svo sannarlega við um ljót verk þessara þremenninga í hryðjuverki gærkvöldsins, þar sem sjö manns voru sviptir lífinu, saklausir rétt eins og þeir 46 sem særðir voru, margir þeirra með löngum hnífum illræðismannanna sem nú eiga sjálfir á illu von í helvíti, því að sannarlega er til réttlæti sem nær út yfir gröf og dauða.

En við skulum þakka fyrir það fólk sem er reiðubúið að vinna fyrir öfl réttlætis og gæzku í veröld þessari, jafnvel fórna lífi sínu í þágu annarra.

Jón Valur Jensson.


mbl.is Henti stól í árásarmann og hljóp burt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kerfið brást - eftirlitið allt of slælegt með öfga-islamistum

Með 23.000 jíhadista í Bretlandi er skelfilegt til þess að hugsa að yf­ir­völd­um hafði ít­rekað verið til­kynnt, að hug­ur Salm­ans Abedi hafi staðið til hryðju­verka, en ekkert gert til að stöðva hann!

Breska leyniþjón­ust­an MI5 hef­ur sett af stað tvær út­tekt­ir á því hvernig sú hætta, sem stafaði af hryðju­verka­mann­in­um Salm­anAbedi áður en hann sprengdi sig og tugi aðra til bana í Manchester á mánu­dags­kvöld, fór fram hjá eft­ir­lits­stofn­un­um. (Mbl.is)

Allar tilkynningarnar, sem borizt höfðu af árásarhug hans, hafa strandað einhvers staðar í stöðu kerfinu.

Breska dag­blaðið Guar­di­an grein­ir nú frá því að rann­sókn á þessu hafi haf­ist í síðustu viku og að henni sé ætlað að koma auga á aug­ljósa galla í kerf­inu. Hin rann­sókn­in, sem nú er haf­in til viðbót­ar, fari þá nán­ar ofan í kjöl máls­ins. Inn­an­rík­is­ráðherr­ann Am­ber Rudd neitaði í dag að full­yrða nokkuð um hvort yf­ir­völd hefðu farið á mis við tæki­færi til að finna út áform Abedi fyr­ir árás hans. (Mbl.is)

Það er eins og lögreglan og leyniþjónustur hafi verið tregar til að grípa inn í - kannski kostað talsverðu til njósna, en ekki talið sig finna neina staðfestingu á því, að illmennið byggi yfir vopnum - en kannski látið það halda aftur af sér að vera treg til húsrannsókna, með líklegar ásakanir um "brot gegn persónuvernd" í huga.

Þetta gengur ekki. Lögregla verður að hafa allar nauðsynlegar forvirkar rannsóknaheimildir til þessara hluta og nota sér þær, ella geta mörg mannslíf farið forgörðum. Málið allt verður vonandi til þess, að betrumbót verði gerð á þessu "kerfi" í Bretlandi, sem brást svona. En ef ekki tekst að sanna málið fyllilega, þótt vitnisburður bendi til glæpaáforms á þessu sviði, þá ætti að láta nægja að vísa viðkomandi úr landi, til upprunalands. Það mun jafnvel vera mögulegt í slíkum undantekningatilfellum, a.m.k. í ýmsum Evrópulöndum, þótt við komandi sé fæddur þar og kominn með ríkisborgararétt.

Svo skal ítrekað hér, að stjórnvöld í Evrópulöndum ættu að stemma stigu við öllum frekari innflutningi múslima, ef ekki líður a.m.k. eitt ár til næsta skæða fjöldamorðs á vegum islamista. Tillagan er bæði hófsöm og sanngjörn og skilur þá ábyrgð eftir á herðum múslimskra öfgamanna að geta ýmist haldið álfunni lokaðri fyrir frekara fólksstreymi úr löndum þeirra eða opna á ný á fólksflutninga þaðan.

Jón Valur Jensson.


mbl.is Tvær rannsóknir á eftirtekt stjórnvalda
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Paula Robinson, amman sem kom 50 börnum í öruggt skjól eftir hryðjuverkið í Manchester

„Fólk eins og Paula veitir okk­ur von um að það sé meira gott en illt í heim­in­um,“ skrifar Mart­ina Car­son, ein þeirra sem deildu pósti Robin­son á Face­book. 

Í þeim pósti lýsti frú Robinson eftir foreldrum barna sem hún kom fyrir á hóteli eftir að þau höfðu þyrpzt út úr tónleika­höllinni, dauðhrædd og ráðalaus. Þannig gerðist hún "tengiliður fyrir örvænt­ingar­fulla foreldra sem óttuðust það versta" (Mbl.is segir frá).

En ekki miklast hún af framtaki sínu: Í viðtali við tíma­ritið Roll­ing Stone segist hún „eng­in hetja.“

„Ég gerði ekk­ert sem all­ir aðrir hefðu ekki gert. Ég hugsaði um mín eig­in börn og veit hvað ég vildi að ein­hver gerði fyr­ir þau. Ég hefði viljað að ein­hver annaðist þau og kæmi þeim á brott af svæðinu ef ég gæti ekki gert það sjálf,“ sagði Robin­son.

„All­ir voru á fullu á Face­book, þannig að ég hugsaði að ef ég gæti komið síma­núm­er­inu mínu þar út og fengið fólk til að deila því þá gæti fólk hringt í mig og ég von­andi hjálpað eitt­hvað smá­veg­is,“ sagði hún. „Ég á börn og barna­börn og mér líður illa að hugsa um að börn hafi far­ist.

Fallega brást hún við:

Hún var stödd við Victoria-lest­ar­stöðina þegar hún heyrði „háan hvell“, sá spreng­ing­una og svo fljót­lega eft­ir það fjölda ungra barna koma hlaup­andi hrædd út.

Paula Robinson sagðist bara hafa gert það sem hún vildi ...

Hún tók strax til sinna ráða og safnaði að sér jafn­mörg­um krökk­um og hún gat og fór með þau á næsta hót­el þar sem hún gaf þeim heitt að drekka, faðmaði og huggaði þá sem þurftu á því að halda og aug­lýsti síma­núm­er sitt á sam­fé­lags­miðlum í því skyni að reyna að koma for­eldr­um í sam­band við börn sín.

Þetta er sannarlega náungakærleikur í verki. Paula Robinson er lýsandi fordæmi fyrir aðra.

JVJ.


mbl.is Amma bjargaði 50 börnum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Árás handbendis Ríkis islams á ungmenni á tónleikum skilur eftir sig dauða og tortímingu. Ný varnarstefna nauðsynleg án tafar!

Saffie Rose Roussos var átta ára og hafði farið á...

Þessi átta ára stúlka, Saffie Rose Roussos, lézt í hryðju­verkinu í Man­chest­er. Móðir hennar og syst­ir særðust báðar og eru á sjúkra­hús­um. Af yfir 100 sem særð­ust eru 12 börn und­ir 16 ára aldri. 22 eru látnir.

Verður Bretland samt aftur eftir þetta skelfingar­kvöld? Eða er enn beðið endur­komu 1850 "Breta" til landsins frá því að hafa þjónað sem drápsmenn ISIS-samtakanna í Sýrlandi? Hve lengi á þessu að halda áfram? Á ekki að stöðva alla öfgapredikara islamista í moskum landsins, hreinlega banna stór­hættu­legan áróður þeirra? Eða kjósa Bretar og fleiri þjóðir að ganga eins og lömb til slátrunar?

Vesturlönd ala marga eitur­snákana við brjóst sér. Þetta er ekki öfgatal, heldur mjög vægt orðað um þessa fjölda­morðingja sem enn bíða færis að sæta lagi gegn saklausum. Upp um marga slíka hefur raunar komizt, þannig að hefðu njósna­varnir lögreglu í Evrópu ekki verið jafn-árangursríkar og þær þó hafa verið, væru þjóðir Evrópu búnar að líta enn meiri hörm­ungar á þessari öld. Það sést af lista um hryðjuverk sem tókst að koma í veg fyrir. (En hér er annar listi, dapurlegri: afhjúpandi yfirlit um helztu "afreksverk" öƒga-islamista víða um lönd.)

Hér dugar engin vægð né miskunn, og það á eins við hér á Íslandi, að varnir okkar þurfa að vera bein­skeyttar og harð­skeyttar í samræmi við til­efnin. Við höfum ekkert með það fólk að gera sem þyrpist hingað af baráttu­svæðum islamista, nema viðkom­andi séu hrein fórnar­lömb. Þar ættu kristnir menn og jasídar að vera efstir á listanum, en þeir hafa goldið fyrir þann "nýrasisma" hins svokallaða "góða fólks" í Rauða krossinum og meðal stjórn­valda, að hér hefur öll áherzla verið lögð á að fá inn múslima frá Sýrlandi og Írak, sem og að fá inn hælis­leit­endur frá múslimskum löndum öðrum fremur. Mál er að linni nú þegar!

Þessi mynd er af vettvangi ódæðisverksins (hinir sorglegast útlítandi eru faldir á myndinni):

Jón Valur Jensson.


mbl.is Annað fórnarlambið: Saffie Rose 8 ára
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Blóðug árás í Jerúsalem á föstudaginn langa

 

Þessi tvítuga stúlka, Hannah Bladon, guðfræðinemi frá Birm­ingham, lagði stund á frekara nám við Hebreska há­skólann í Jerú­sal­em. Hún lézt eftir að 57 ára Pal­estínumaður, Jamal Tam­imi, tók upp búr­hníf og stakk hana mörg­um ban­væn­um stung­um í vagn­in­um sem hún ferð­aðist með.

Þetta gerðist utan við múra Gömlu borgarinnar. Maðurinn náðist. Myndbands­upptaka sýnir hvernig hann var snúinn niður og hand­tekinn af lögreglu og óbreyttum borgurum. Að sögn yfir­valda var hann nýkominn af geð­sjúkrahúsi og hafði reynt sjálfsmorð fyrr á árinu.

Ungfrú Bladon, hlédræg stúlka, kurteis, en feimin og þó áhugasöm um að afla sér nýrrar reynslu í Landinu helga, hóf nám í trúar­bragða­fræðum við Birm­ing­ham-háskóla 2015, en kom til Jerúsalem í janúar sl. og lagði þar stund á fornleifafræði, Biblíufræði og hebreskunám.

Menn tala oft um hatursáróður. Palestínu-arabar ættu að reyna að hafa hemil á sínu fólki í stað þess að ala á hatri, eins og þó er gert á vegum öfgasamtaka, jafnvel meðal krakka á barnaskólaaldri, eins og sést á upptökum frá slíku. Sjálfsvígsárásir gerast naumast nema á grunni skipulagðs hatursáróðurs, sem umturnar mönnum og breytir þeim í mannskæðar vígvélar. Saklaus fórnarlömb líða fyrir þetta og allt þeirra fólk. Þannig er Kristur krossfestur enn á ný.

JVJ, byggt á The Times o.fl., fyrir utan lokaklausuna.


mbl.is Bresk kona myrt í Jerúsalem
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Leikkonan Sally Phillips: Samfélagið vill að börn með Downs-heilkenni hætti að fæðast - og það er rangt!

Image result for Sally Phillips Olly "Ef við meinum einhverjum um tækifæri til að fæðast vegna þess að við höfum ákveðið að viðkom­andi muni ekki mæta fyrir fram ákveðnum mæli­kvarða á stöðu eða árang­ur, þá skilj­um við ekki hvað það er að vera mann­leg."

"Ég ætla að gera blóð­rann­sókn til að sjá hvort sonur þinn er með Downs-heilkenni." Ég var svo leið. Ég gleymi aldrei greiningunni. Læknirinn leit út eins og Iain Glen. Ég grét ekki, þótt hjúkrunarfræðingur á vakt gerði það. Ég andaði mjög hratt og blakaði höndunum. Ég man ég hugsaði, "Ef ég ætti að leika manneskju sem hefur orðið fyrir áfalli í mynd, þá mundi ég ekki gera þetta, þetta er of mikið." Við drukkum sætt te og vorum tekin inn í hliðarherbergi, þar sem við hringdum í vini og töluðum við þau lágum rómi. Einn læknir sagði: "Sum þeirra lifa nokkuð langan tíma" og annar: "Fullorðnir geta haft falleg, saklaus augu." Hjartasjúkdómar og hvítblæði voru nefnd, kímnigáfa og dansgeta voru ekki nefnd. Ef bara einhver á Royal Free-sjúkrahúsinu í Norður-London vissi að flestir með Downs-heilkenni fara í almennan skóla, hafa tilfinningahæfni fyrir ofan meðaltal eru elskaður af fjölskyldum þeirra og eru ánægðir ...

Það hafði tekið tíu daga fyrir þau að taka eftir auka-litningunum sem Olly var með. Móðir mín hélt áfram að segja, "Barnið grípur ekki", vegna þess að hún hafði lesið einhvers staðar að nýburar hafi grip-styrk á við apa og geti haldið uppi eigin þyngd ef þau hanga niður úr stöng ...

Á öðrum degi spurði ég barnalækni af hverju augu Olly opnuðust ekki almennilega. Voru kinnar hans of stórar, spurði ég. Var það vegna þess að ég hafði borðað of margar sætabrauðs-lengjur þegar ég var ólétt? "Hugsanlega, já," sagði hún. Hvernig við hlógum.

Á þriðja degi athugaði ljósmóðirin athugasemdir mínar. "Þú fæddist í Hong Kong. Áttu kínverska ættingja?" Enginn hafði nokkurn tíma sagt eitthvað svo skemmtilegt. En það kemur kannski ekki á óvart ef heilbrigðisstarfsfólk getur ekki alltaf tekið eftir hvort barnið er með Downs-heilkenni. Það eru aðeins um 40.000 manns með heilkennið í Bretlandi. Ég geri ráð fyrir að flestir læknar hafa aldrei hitt neinn með Downs-heilkenni, hafi aldrei verið vinir einhvers með Downs-heilkenni, aldrei haft tannbursta sinn í sama bolla og viðkomandi. Vissulega er lýsingin á einhverjum með Downs-heilkenni í læknisfræðikennslubókum gjörólík 12 ára drengnum okkar.

Olly var ekki tveggja ára áður en mér byrjaði að líða eins og ég væri svikari. Margir voru ennþá að kinka kolli til mín og sýna mér samúð, en líf mitt hafði alls ekki verið verið lagt í rúst. Langt frá því. Það er öðruvísi, það er allt og sumt. Það eru fleiri viðfangsefni, en líka mikið meiri hlátur. Þeir segja að gamanleikur sé harmleikur sem spilaður sé á 120 mílna hraða á klukkustund. Kannski er það það sem er að gerast.

Þar sem ég bý er ég ekki álitin vera konan frá Miranda sem þarf að "afbera" eitthvað. Ég er mamma Ollys. Olly er fær um að gera hluti, þú sérð. Fólk með Down-heilkenni getur ekki klifrað, segir bókin. En það á ekki við um hann. Hann klifraði upp 12 feta girðingu með stiga aftur og aftur til að komast inn í garð nágranna okkar vegna þess að hann langaði til að leika við tvíbura þeirra. Við erum öll vinir núna: við settum upp stiga.

Þegar hann var sjö ára fórum við í Disney World. Við skráðum okkur inn í Pixar-hótelið. Þegar ég var í baði sofnaði maðurinn minn (Andrew Bermejo), sonur minn Luke, þá fimm ára og Tom, ungabarnið. Olly fór að leita að Nemo. Samtal mitt við öryggisverðina fimm mínútum síðar var eitthvað á þessa leið.

"Sonur minn hljóp í burtu!"
Öryggisvörðurinn (í talstöðina): "Við höfum týnt barni. Frú, í hverju var hann? "
"í engu."
Eftir stutta þögn. "Við höfum hann, frú."

"Vissir þú hvort hann hafði Downs-heilkenni þegar þú varst ólétt?" Það er ekki góð spurning, en fólk spyr samt. Stundum segja þeir: "Vissir þú ekki?", sem er verra. Ég vissi ekki að hann myndi segja slæma brandara og elska hip-hop og heldur ekki að hann myndi styðja sjö knattspyrnufélög í einu í ensku úrvalsdeildinni. Auðvitað myndi ég hafa haldið honum. Mér líkar áskoranir og það er ekki eins og ég lifði hefðbundnu lífi sem óhefðbundið barn væri að raska. En ég er óhefðbundin. Í Bretlandi láta 90 prósent kvenna sem fá greiningu á Downs-heilkenni á meðgöngu slíta meðgöngu. Það er spurning hvort ástæðan sé hversu lítið viðkomandi virðist vita um raunveruleikan að búa með Downs-heilkenni. Hvaða upplýsingar hefur fólk þegar það tekur þessar erfiðu ákvarðanir, og myndi það velja öðruvísi ef það vissi sannleikann?

Ég byrjaði að gera BBC2-heimildarmynd mína vegna þess að ég finn ekki að Down-heilkenni sé svo alvarleg fötlun að það krefjist svo mikilla fjárfestinga ríkisstjórnarinnar í svo mörgum ástandsprófunum. Sumir málsvarnar-hópar töldu að það væri markmið ríkisstjórnarinnar að draga úr fjölda Downs-samfélagsins til að spara peninga. Ég vonaði virkilega að þeir hafi rangt fyrir sér. Hér skimum við til að gefa konum kost. Hins vegar, á meðan gerð heimildarmynd stóð yfir, heyrði ég margar, margar sögur af konum sem voru undir þrýstingi frá heilbrigðisstarfsfólki að fara í ómskoðun og jafnvel að binda enda á meðgöngu. "Við skulum hætta þessari vitleysu núna á meðan þú getur," "ég hef bókað þig í fóstureyðingu á morgun," "hjónabandið mun brotna upp ef þú ert með þetta barn," "þú vilt ekki annað eins og hana, er það?" "Þau setja mikið álag á heilbrigðisþjónustuna, þú veist." Þetta eru allt beinar tilvitnanir ...

Ef við meinum einhverjum að fæðast vegna þess að við höfum þegar ákveðið að sá eða sú muni ekki mæta einhverjum fyrirfram ákveðnum mælikvarða á stöðu eða árangur, þá höfum við alvarlega misskilið hvað það er að vera mannlegur. Kannski er ein af þeim miklu gjöfum, sem fólk með fötlun hefur að færa okkur, valdið til að minna okkur á þetta, að kenna okkur og leiða okkur aftur inn í það að vera mannleg. Þegar ég var yngri, ef þú hefðir spurt mig um tilgang lífsins, hefði ég reynt að gefa þér eitthvert sniðugt svar. En nú myndi ég segja ást. Það skiptir ekki máli hvort þú getur gert stundatöflur eða ekki ef þú hefur elsku. Ég mat áður sjálfstæði mikils. Ég velti nú fyrir mér hvort sjálfstæði sé ekki svolítið einmanalegt og ef það að vera öðrum háður sé ekki allt í lagi.

Stundum skammast ég mín fyrir að geta ekki stjórnað krökkunum mínum án foreldra minna, en öðrum tímum er ég bara fegin að við erum svo mikið nær hvert öðru. Ég var í vinnunni og Olly gekk í hús vinkonu sinnar og settist í garðinum hennar og neitaði að fara. Ég hringi í pabba taugaóstyrk. Og pabbi lagði allt frá sér, kemur á bílnum, vindur niður rúðunni. "Hæ, Olly, ég ætla að bjóða þér upp á ís."

Vandamálið leyst. Pabbi og ég höfum hlegið mikið. Borðað mikið af ís. Blaðamenn spyrja mig: "En Olly er að gera vel, hvernig myndi þér líða ef hann væri ekki svo ánægður, öruggur eða klár?" Ég held að það væri synd ef ást foreldris á barninu sínu, hvert svo sem ástand þess er eða heilsa, ráðist af því hvort barnið sé alltaf glatt, öruggt og klárt. Í sannleika sagt, ef þú hugsar um það, það er oft aðeins þegar barnið er ekki ánægt eða öruggt að foreldrarnir vita skyndilega hversu djúpt þeir elska barnið og hvernig þeir þurfa að tjá því ást ...

Mér var sagt Olly gæti ekki gengið. Hann gengur, hleypur, syndir og hjólar. Mér var sagt að hann gæti ekki talað. Hann kveður ljóð, hann virkar, hann spilar á píanó. Mér var sagt að hann myndi ekki vera fær um að höndla peninga eða vera sjálfstæður. Klukkan 8 í morgun hafði Olly gert sinn eigin  morgunverð, fengið sjónvarpið til að virka sem enginn annar gat lagað og kveikt á Match of the Day, skroppið út til að kaupa Jumbo-pakka af Marshmallows, etið mikið og kallaði mig "wazzock"..." (mild útgáfa af orðinu kjáni).

Hér er Sally Phillips með íslenskri stúlku með Downs-heilkennið:

The debate has been fuelled by a new test for Down’s syndrome, which tells pregnant women with 99 per cent accuracy whether their baby is likely to have the condition. Miss Phillips is pictured meeting people with Down's syndrome during the programme 

Actress Sally Phillips (right) was accused yesterday of using her Down¿s syndrome son Olly (left) to make expectant mothers feel guilty about abortion

Grein þessi er lítillega stytt þýðing af viðtali við bresku leikkonuna Sally Phillips á vefsíðunni radiotimes.com.
http://www.radiotimes.com/news/2016-10-05/sally-phillips-society-wants-to-stop-down-syndrome-babies-being-born--and-its-wrong

Steindór Sigursteinsson þýddi.


mbl.is Þúsundir mótmæltu fóstureyðingum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Um bloggið

Kristinn þjóðarflokk !

Höfundur

Kristin stjórnmálasamtök
Kristin stjórnmálasamtök

Athugasemdir birtast ekki sjálfkrafa né strax og eru því aðeins samþykktar að þær fari ekki langt út fyrir efni blogggreinar, séu orðaðar kurteislega og feli ekki í sér árás á kristna trú og söfnuði né heldur lögbrot eða grófar persónuárásir eða hæpnar fullyrðingar án nafnbirtingar. Áskiljum okkur rétt til að útiloka menn kunna að árásum á kristindóm og kirkju. Og skrifið undir fullu nafni! - Skoðið eftirfarandi neðar í þessum dálki: TENGLAR – Yfirlit fyrri greina. For info. in English on this CHRISTIAN POLITICAL MOVEMENT, see HERE.

Bloggvinir

Apríl 2018
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Eldri færslur

Nýjustu myndir

  • 11282531 1589495121310922 376275531 o
  • jesus kristur 1301705
  • 13wochen
  • 19d7v3r18h3r1
  • GRHI20UO
  • Pasted Graphic
  • Jón Valur Jensson, maí 2016
  • Steindór Sigursteinsson
  • 1184796 230094733815535 1832625948 n
  • In my office 004

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 3
  • Sl. sólarhring: 26
  • Sl. viku: 454
  • Frá upphafi: 413139

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 383
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband